Okkar Reykjavík er miðdepill alls þess sem höfuðborgin hefur upp á að bjóða. Hér finnur þú kynstrin öll af upplýsingum um hluti til að gera, borða og upplifa, en umfram allt viljum við færa þér Reykjavík, þennan litríka gimstein norðurhafsins, eins og þú hefur aldrei séð hana áður. Í óvissuferðum okkar munuð þú og ástvinir þínir upplifa alls kyns dekur og ævintýri, hvort sem það er gisting á gæðahótelum, bátsferð, leikhús, safnferð, veitingahús eða stand-up grín, bara svo fátt eitt sé nefnt. Vertu ekkert að flækja málin -- leyfðu okkur bara að sjá um þetta, og kynnstu borginni upp á nýtt.
Hvað er okkar Reykjavik?Í höfuðborginni er að finna margs konar þjónustu við allra hæfi og erum við búin að taka saman yfirlit yfir það helst sem er hægt að gera, sjá, svala sér á, stinga sér út í, renna sér niður og svo framvegis.
Í borginni má finna margs konar ferðatengdar vörur og þjónustu sem er hægt að kaupa sér aðgang að hér á síðunni allt frá hvalaskoðun til svifvængjaflugs.
Mörg söfn eða viðburðir eru á höfuðborgarsvæðinu og öruggt mál að hægt er að lífga upp á tilveruna með því að skella sér á góða sýningu eða skemmtilegan viðburð.